Alvöru menn, engir sterar, ekkert kjaftæði!

Fréttir af 2 mönnum í borg óttans

11.04.2008 13:06:54 / viktho

Þú ert undraveggurinn minn...

Halló halló! />

Gott fólk, galadinner fór fallega fram í Bítlabænum Keflavík síðastliðin mánudag, fallegurhópur af fólki lét sjá sig. Það voru s.s. Ég, Óli Gústa, Hilmar og konan hansHulda, Erna, Ína úr Idolinu OMG!!!, Maggi, Bjarni og svo að sjálfsögðu Ari semhélt samkomuna í þetta skiptið! Ég er að segja ykkur það, þetta var barageggjaður maður og geggjað kvöld! Það sem við fengum í matinn var />

Exotic humarsúpabætt með ananas />

Nautalundir,sveppir og sætkartöflumús bætt með gráðosti og hvítlauk />

 Viskígljáður ananas með mangó sorbet ogvanilluís. />

Ekki slæmmánudagsmáltíð ha?? Við þjónanemarnir mættum með V.I.P. vín með okkur, nenniekki að rifja upp hvað það var, þó var rauðvínið örlítið þungt með matnum, einsog Maggi sagði þá var þetta vín gaurinn sem kom og traðkaði á andlitinu á þérþegar það væri nýbúið að kýla þig niður. Ég mætti með bjórdæluna með mér, Ernavill að ég kalli hana Gnesu, í höfuðið á fyrrverandi unnustu minni, æjj ég veitþað ekki, hvernig hljómar það.. Kem heim með stelpu, hún gæti stjarnfræðilegaséð spurt hvað ég hafi skýrt bjórdæluna mína “Já, hún heitir Gnesa, í höfuðið ífyrrverandi kærustunni minni.. hún dælir bjór sem er æðislegur.. frábær..tilfinningaríkur.. hlustar á mig.. *sniff sniff* agnes...” Svo endar það kvöldað daman fer, sleppir því örugglega ekki að hrækja á mig, og ég sit einn eftirog grátrunka mér fyrir svefninn! Þannig að ég ætla að finna betra nafn á þessabjórdælu til dæmis Steingrímur. En nóg um það, við stefnum á að gera þettaaftur á þriðjudaginn, og þá heima hjá Hilmar. Ég get því miður ekki haldiðneitt svona aftur, því að mínir ágætu nágrannar hafa verið að kvarta undan mér,ég hef aldrei haldið partý í íbúðinni minni.. flestir sem hafa verið inní íeinu er svona 6 manns, og síðast þegar ég tjekkaði í alfræði orðabókina, þá varþað ekki partý. En svona er þetta. En égvar búinn að lofa Ernu að biðjast afsökunar á því að hafa móðgað hanaallhressilega í síðustu færslu þegar ég sagði að allir nemendur sem eru ekki íkokkinum eða þjóninum væru fávitar, hún hefur ekki lagt fram kæru á hendur mér.En ég myndi segja að hún hafi lagt fram andlega kæru. En allir nemendur sem eruekki í kokkinum eða þjóninum eða í Ernu er leiðinlegir. Held að allir séubara sáttir núna! En annars þarf ég eiginlega að fara pakka niður og svona,kjellinn er að fara til Hornafjarðar, það eru víst allir að flýja yfirlandamærin þegar og Ragga sveigjum okkur í bæinn.. Akureyri er víst málið.. Enég nenni eiginlega ekki að skrifa meira! Ég þakka fyrir mig í bili oghjartanlega góða helgi!
Heil og blessuð! />


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 02:11:14 / viktho

Lækkiði nú þetta h*lvítis bensín!

Komiði sæl gott fólk..
Frekar en aðrir landsmenn eða jafnvel námsmenn á ég bara ekki sjö dagana sæla núna. Það er allt út af þessu verðbólgurugli í þessu landi, hvernig er hægt að bjóða okkur uppá þetta? Ég setti bensín á bílinn fyrir 1000 kall í gær og fékk einhverja 6 lítra fyrir það, þetta er auðvitað bara rugl og vitleysa þegar námsmaður eins og ég í 3 vinnum að keyra út um allan bæ og bý í Grafarholti. Maður hefur bara ekki efni á þessu, svo liggur við að maður hafi ekki undan í skólanum af því maður er að vinna svo mikið út af því manni kvíður svo mikið fyrir næsta mánuði. Þess vegna tek ég ofan fyrir vörubílstjórunum sem eru með hörð mótmæli hérna í Reykjavík, þetta er í rauninni alvöru mótmæli, það er ekki allveg að virka að kaupa svartan tússpenna, pappaspjald, prik og ný raddbönd til að mótmæla. Það verður að gera eitthvað í verkum eins og vörubílstórarnir eru einmitt að gera, þarna tekur einhver mark á þér! Heyrðu og rétt í þessu var ég að lesa um mitt fólk á Hornafirði! Þetta eru auðvitað bara snillingar útí eitt.. Þeir tóku sama leik þar eins og í Reykjavík, þeir lokuðu hringveginum til að mótmæla þessu öllu saman! Ég er bara yfir mig stoltur af mínu fólki núna.. En ég held að þetta eigi eftir að enda á góðan veg.. Bensínverðið fór uppí 150 kr. á Ártúnshöfða í dag, og ég hélt ég yrði ekki eldri.

En nóg um þetta rugl.. ég hef það annars bara fínt um þessar mundir.. Bara sama blaðsíða og venjulega, alltaf að vinna og í skólanum á fullu. Var að koma úr Gala dinner úr grafarholtinu með nágrönnum mínum og einum aðkomumanni úr Hlíðunum. Það voru s.s. ég, Maggi og Óli Gústa sem búum allir á Klausturs- og Kapellustíg hérna í Grafarholtinu, en Bjarni fékk þann heiður að vera með okkur í þessum glæsilega dinner. Við byrjuðum á góðri humarsúpu, það var reyndar humar frá vestmannaeyjum en ég náði að horfa framhjá því, súpan var alveg æðisleg. Svo fengum við kindafillet sem bráðnaði gjörsamlega uppí okkur, alveg yndislega gert hjá strákunum. Ég auðvitað dekkaði á borð og hellti víni fyrir fólkið, þannig að þetta var bara fullkomið kvöld hjá okkur strákunum. Þetta var í fyrsta skiptið sem við gerðum þetta en vonandi ekki það síðasta! Annars er lítið í fréttum hjá kallinum.. Held ég hafi þetta bara í styttra lagi í þetta skiptið.. Ég fer nú bráðlega að koma í Fjörðín fagra bráðlega, kem á Rocky Horror sýningu 12. Apríl minnir mig með Óla Gústa, sem lék einmitt Rocky í sama leikriti fyrir fáeinum árum á Egilsstöðum. En það verður bara vonandi gaman, hver veit nema Óli verði skorinn á háls eins og Dalton bræður. Ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra, en gott fólk.. Það væri rosalega gaman að sjá nokkur comment frá þjóðinni... allavega einhverri manneskju sem tekur undir þetta tuð í mér!

Takk fyrir mig í bili!
Viktor Ragnar..



» 5 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 13:18:38 / viktho

Langt hef ég farið og mig langar heim..

Ég sit hérna í stærðfræði í Menntaskólanum í Kópavogi. Eitt verð ég að segja, kokkanemarnir og þjónanemarnir eru yndislegir, en almennir nemendur eru ekkert rosalega spennandi, ég held að ég myndi ekki fara í þennan skóla ef ég þyrfti þess ekki. En nóg um þessa vitleysu, ég verð að halda uppí Heimir fyrst að hann kom með færslu, þó að það hafi verið ofboðslega gaman að sjá hann láta vita að sér. Í grófum dráttum hafa síðustu vikur bara verið uppá 110%, Food and Fun stóð algjörlega uppúr því. Þetta byrjaði allt á miðvikudeginum með því að seðillinn kom í hús og Vox-teymið tilbúið í slaginn við Food and Fun, svei mér þá, mér fannst ég hafa verið að teikna óla prik alla hátíðina, við einfaldlega stilltum upp því skipulagðasta liði sem hægt er að gera. Ég er farinn að knúsa fólk reglulega þegar svona stórir dagar eru farmundan, vonandi fólki til mikillar gleði. Matseðillinn var geðveikur, ætla nú ekki að lýsa honum í smáatriðum, það sem var boðið uppá var bleikja, ostrur, saltfiskur, íslenskur humar, norskur kóngakrabbi, dönsk gargönd, íslenskt lamb og að sjálfsögðu skyrið okkar. Eftir laugardagsvaktina var fengið sér í aðra tánna ef ekki báðar, gala dinnerinn var einmitt haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, það var bara rosalega gaman að sjá allt fólkið sem maður þekkir úr þessum ágæta bransa. Svo eftir það var haldið á Apótekið þar sem stemmingin hélt áfram fram í rauðan dauðann eða s.s. til svona um 7 leitið þegar ég og Óli Gústa ákvöðum að halda heim í Klausturstíginn. Vaktin tók við á sunnudeginum, þreytan var óbærileg, svefngalsinn einkenndi vaktina, síðasta official food and fun kvöldið var alveg að bresta á. Það gekk að sjálfsögðu eins og í sögu eins og allt annað í þessari hátíð. Þrátt fyrir alla þreytuna fórum við nokkrir og fengum okkur í glas, enduðum þrír drengir heima hjá Óla að drekka rifsberjavín, mjög töff. En ég vil þakka öllum á Nordica fyrir geðveika helgi ég vona að ykkur þykir vænt um mig. Nú er kominn föstudagsfílíngur í mann, ég var að einhverju Hornfirðingapartýi á Goodfellas í ármúla, hver veit nema maður kíki á það í kvöld, eða bara apótekið, þar sem fólkið fer bara. En jæja þetta er orðið svo langt að ég er farinn að sækja um elliheimilisvist.

Ég bið öllum vel að lifa.
Læt þessa mynd fylgja með af Goran að taka græna korts dansinn..
Heil og sæl, Viktor Ragnar!
http://a993.ac-images.myspacecdn.com/images01/43/l_4206fe0c14fe7b929912b1b51916a8f8.jpg


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 23:48:27 / viktho

Frá klessuverki til meistaraverks

Já...ég fæ bara samviskubit hvað Viktor er duglegur að skrifa hérna inn á þessa síðu en ég undirritaður Heimir Ingimarsson sit bara heima með sveitta handakrikana og vogaídýfu.

Ef það er eitthvað sem ég fíla í botn þá er það kvennablak. Af hverju er ekki hægt að sýna kvennablakið í sjónvarpinu á þiðjudagskvöldum þegar ekkert er í sjónvarpinu. Ég gæti meira að segja tekið að mér að verða lýsir sem kemur með kröftuga og dugmikla lýsingu og stununum sem heyrast þannig að þið hugsið bara: "Vá af hverju er ég ekki löngu byrjaður/byrjuð að horfa á þessa íþrótt fyrr".
En allavega þá ákvað ég að skella inn einni færslu hérna inn svona rétt til að æfa fingrasetninguna. Eins og Viktor nefndi svo réttilega í fyrri færslu þá er Janus ekki flúinn úr landi heldur hefur hann haldið sig í firðinum fagra fyrir austan. Þar hefur hann sést oftar en þrisvar og oftar en fjórum sinnum dansa á götum úti í hornfirsku rigningunni með blautt rautt hárið við munnhörpuleik móður sinnar.
En já ég nenni ekki að hafa þetta lengra... Nenni engan veginn að tala um hvað er að gerast í mínu lífi núna enda er það aukaatriði

Yfir og út

Heimir


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 13:23:25 / viktho

Janus er ekki farinn úr landi




Það grunaði engum að Janus væri ekki farinn úr landi, en hann hvarf sporlaust eftir spillinguna í Verzlunarskólanum. Móðir hans hefur sagt í fjölmiðlum að henni sé nákvæmlega sama hvar hann er en okkur á gleðitímum stendur alls ekki á sama. Þessi mynd var birt á veraldarvefssíðu FAS eftir ratleik sem fór fram í opinni viku sem er nú í gangi. Var janus á staðnum? Eða er hann ein af þessum vofum sem birtast bara á myndum og eru bara pirrandi og þvælast fyrir. Enginn man eftir honum á staðnum, fólkið á myndinni neitar að bera vitni. En eitt er víst að Janus er á lífi, með sama hárlit og venjulega.

Yfir og út, Viktor

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 02:59:33 / viktho

Sendu nú gullvagnin að sækja mig..

Síðast var bloggað á Gleðitímum í September 2007.. Mér finnst svolítið eins og Heimir sé alveg sama um samband okkar við gleðitíma! Vil helst fá frá honum yfirlýsingu um eitthvað, afsökunarbeiðni eða slíkt! En nóg um það, ég ákvað að blogga aftur af því að mér leiðist óhemju mikið núna! Ég er orðinn einhleypur aftur, við Agnes tókum sameiginlega ákvörðun og allt í góðu bara, en ég ætla nú ekki að taka neina Óla Geirs bloggfærslu hérna heldur ætla ég að einbeita mér að því skemmtilega sem gerist hjá okkur í lífinu! Ég hugsa að ég skrifi fyrst um jólin, þau voru ágæt. Ég reyndar var að vinna á aðfangadag og jóladag, sem mér finnst svo ókristilegt að það hálfa væri hellingur. En ég meina, það er skiljanlegt að hjúkrunarfræðingar, læknar, lögreglumenn og eitthvað í þá áttina séu að vinna fullt yfir hátíðarnar, en að vinna á veitingastað á aðfangadag finnst mér hallærislegt. En auðvitað reyndi maður að brosa í gegnum það að vera að vinna kl 6 á aðfangadag.. þetta fór allt bara nokkuð vel! Ég fékk bjórdælu frá Agnesi, og ég hirti hana í skilnaðinum, en ekki hvað! Svo fékk maður bara þetta vanalega, DVD myndir, föt, snyrtidrasl og þannig! En allt batnaði þetta þegar ég fór á fyllirí til John Rock á jóladagskvöld, ég drakk reyndar aðeins of mikið.. En svo var vaknað um 2 leitið daginn eftir og haldið uppá flugvöll svo ég gæti flogið í fjörðin fagra. Ég beið spenntur eftir að geta farið á 2 í jólum ball og fyrirpartí og svona. Þetta var rosalega gaman, fyrir utan það að ég var svo þunnur ennþá að ég gat ekki drukkið mikið. Þannig að ég lofaði sjálfum mér að djamma eins og mófó á gamlársdag. Ég stóð við það, þetta var án djóks eitt skemmtilegasta ball með Parket sem ég hef farið á, þrusugóð stemming og allir hamingjusamir, fyrir utan Emil. Svo enduðum við nokkrir heima hjá Emil, einhverja hluta vegna fór Emil að elda ommilettu, sem var bara nokkuð vond. Það var allt í lagi því ég og Heimir fórum svo bara heim til mín og græuðum nokkrar samlokur kl 9 um morguninn, það var indælt. Svo var bara þynnka daginn eftir.. Það er eitt alveg hræðilegt við 1. janúar, það er ekkert hægt að fara og fá sér þynnkumat, þetta er í rauninni stærsti þynnkumatsdagurinn á árinu og það er bara lokað, spáið hvað hann Jón Sölvi hefði grætt á því ef hann mætti hafa opið á nýársdag, en nú er ég farinn að tuða svo mikið að það hljóma eins og ég hafi verið misnotaður í æsku.. Það var haldið heim 2. janúar og mætt í vinnu. Stuttu seinna byrjaði skólinn, og það er alltaf ákveðinn léttir fyrir þjóna og kokkanema að komast í skólann, af því að þegar við erum í fullri vinnu erum við að vinna eins og pólverjar, en aftur á móti þegar ég við komumst í skólann erum við að vinna svo sáralítið að það er bara æðislegt! Ég verð að segja að bekkurinn minn er bara nokkuð góður, þrátt fyrir að það séu nokkrir ormar í eplinu. Maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi. Svo stend ég ennþá á tveimur fótum í dag og mun hugsanlega gera það fram á næstu mánaðarmót. Ég er nýbúinn að sækja um mánaðar sumarfrí allan júlí í sumar, þannig að það verður tekin mjög löng humarhátíð þetta sumarið! Svo stefni ég á að mæta á blúshátíð 29 febrúar, búinn að græja frí og læti. Það verður hugsanlega fengið sér í báðar tærnar þá.

En ég ætla að kveðja í bili, ég vil endilega fá comment frá mínu fólki uppá virðinguna að gera!

Veriði sæl að sinni.. Ari er sætur

Viktor Ragnar


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 20:09:44 / viktho

Viktor er mættur

Jæja, er ekki kominn tími á kallinn, ég hrósa Heimir fyrir dúndrandi færslu, en hún var kannski ekki svo dúndrandi af því að það voru enginn comment. Það er eins og að halda tónleika með 0 gestum. Gott dæmi Viktor, gott dæmi. Heyrðu, ég lifi ennþá af að vera í bænum, þetta venst nefnilega. En þegar ég hugsa um Hornafjörður kemur lag í hausinn á mér sem heitir “Söknuður” og vonandi kemur sama lag þegar Hornfirðingar hugsa um mig. Ég bloggaði síðast 1974, og síðan þá hef ég brallað ýmislegt. Ég náði mér í kærustu á þessum tíma, og höfum við verið saman núna í tæpa 7 mánuði, hún heitir Agnes Rut og ég man ekki hvers dóttir hún er. Svo hefur vinnan heltekið mig eins og svo oft áður.

Ég hugsa að ég taki bara léttan pistil um sumarið. Sumarið var þrususkemmtilegt. Tók mér 3 vikur í sumarfrí. 1 vika í Reykjavík, 1 vika á Hornafirði, og nokkrir dagar á Hólmavík, og ég skal hundur heita ef ég flyt einhvertíman á Hólmavík, það er svona staður sem maður heimsækir bara við virðingu við kærustuna sína. En að sjálfsögðu fór ég á Humarhátíð, hitti fólkið á Kaffi Horninu, þau voru glöð að sjá mig. Það var mikið djammað og djúsað, nema á laugardeginum, þá var ég svo þunnur að ég gat ekki drukkið. Þannig að ég fór snemma heim að sofa og lagði snemma af stað í bæinn daginn eftir. Svo á sunnudagskvöldinu fórum við Nemarnir á Nordica á Silfur út að borða. Sem var líka svona svakalega gott, endaði það með ágætis djammi. Daginn eftir vorum ég og Agnes í þynnkunni að horfa á Monster Trucks og borða drullumat. Nokkrum dögum seinna fórum við einhverja hluta vegna á Hólmavík, fólk er alltaf að hlæja að mér fyrir að vera frá Hornafirði, en kommon. Nei nei, þessi staður er ágætur, býður ekki uppá mikið. Agnes er þaðan sko, þess vegna fórum við. Þetta var samt soldið gaman, fórum á fyllirí meira að segja. Svo komum við aftur til Reykjavíkur og þá hófst vinnan aftur. En besta tilfinning sem ég hef fundið var þegar ég var vaknaður klukkan 10, tilbúinn til að mæta í vinnu, auðvitað grautfúll af því að mig langaði að vera í fríi áfram. Þá fékk símtal frá Palla, sem sagði mér að ég væri í fríi í 2 daga í viðbót, og gleðin sem fór um mig, ólýsanlegt. En nóg um Palla. Ég man ekki alveg hvað gerðist meira, eftir það. Verslunarmanna helgin var vinnuhelgi hjá mér. En ekki á Nordica, heldur Kaffi Horninu. Þá helltust yfir mig minningar, og ég fór að gráta. En já, fallegt og skemmtilegt sumar. Nú tekur bara vinnan við og Vox er eins og alltaf að slá í gegn. Tel að það sé aðallega útaf því að þeir nota mikið af Hornfirsku hráefni, já mér finnst það. Hverjum er ekki sama um það. Elvar Bragi og Sólveig heimsóttu mig um daginn, og við fórum á þrusugóða tónleika með Chris Cornell, djöfull var það fokking geðveikt. Hann kann þetta ennþá kallinn.

 

Síðast en ekki síðst, ég er að fara til Tenerife í Nóvember, ég og Agnes erum að gera okkur rómantíska ferð, hún heimtaði að ég myndi fara þangað, hélt að Grænland myndi fá hennar atkvæði. Það verður alveg hiklaust rosalega gaman.

 

En ég ætla að fara kalla þetta fallegt. Eitt að lokum, er eitthver að fara á Austfirðingaball á Players á föstudaginn? Gæti verið stuð… en hver veit..

Viktor kveður í bili, svo ánægður með lífið að gatan mín heitir næstum því sólheimar.

 

Maybe, I don't really wanna know, how your garden grows! Meikar þessi setning eitthvað sens? En djöfull þykir mér vænt um Ara


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 20:04:55 / viktho

Síðasti móikaninn

ég veit

langt síðan ég bloggaði síðast?

getur passað...

en þýðir að gráta yfir því endalaust?..

oniiii..

það er öööm eins og maðurinn sagði..

En allavega þá heiti ég Heimir Ingimarsson og hef ákveðið að gera tilraun nr. 17 til þess að byrja að skrifa færslur inn á þessa síðu reglulega.. prófum aðeins hvernig það gengur..ef það gengur illa má ég hundur heita en ef það gengur vel skal ég jafnvel skella einum broskalli inn í hverja færslu sem ég skrifa en það hefur löngu verið vitað að ég er lítill broskallamaður og ekki þekktur fyrir að blanda þeim í mál líðandi stundar...

í dag er 19 júlí og sumrið því komið vel á leið..ég ætla ekki að segja frá öllu sem ég hef gert enda orðið ár síðan ég bloggaði síðast heldur ætla ég að segja hvað er framundan..það þýðir lítið að lifa í fortíðinni þar sem henni fær enginn breytt..Það kom einu sinni upp tilfelli í Búðardal fyrir 18 árum síðan þar sem maður var illa haldinn af ólæknandi fortíðarþrá..Þessi sami maður er ekki með okkur í dag þar sem hann lést kvalarfullum dauða við að finna upp hina fullkomnu tímavél sem auðvitað tókst ekki eins og allt skynsamt fólk ætti að gera sér grein fyrir..neinei ég ætla að segja það að ég er að fara á lunga á morgun sem er tónlistarhátíð í hinum margrómaða bæ Seyðisfirði..Ég lét sjá mig þarna í fyrra og skemmti mér alveg konunglega og því ætla ég að slást í för með fríðum mönnum til Seyðisfjarðar þann 20 júlí..Ég fer með Smára, Elvari og Hauki og má búast við mikilli kátínu á leiðinni enda engir aumingjar þarna á ferð..

en allavega þá er sumarið búið að vera mjög fínt með öllu álegginu (Humarhátíðinni, sjómannadeginum og margt fleira) þannig að ég tel mig vera sáttan mann sem er sáttur með lífið og tilveruna þó oft sé stutt í refsarann..

Heyriði

ég ætla að kveðja í bili og þið megið endilega bæta þessari síðu inn í bloggrúntinn þar sem ég lofa að koma með færslu mjög reglulega..jafnvel annanhvern dag..og endilega commentiði og látið skoðanir ykkar í ljós..Þið gætuð jafnvel unnið til verðlauna fyrir flottasta commentið þar sem eru veglegir vinningar í boði.. Þar má nefna fría sálfræðigreiningu hjá Eysteini, kynferðislegt vinnustaðaáreiti frá Jóhann Bergi og karamellukleinu hjá Sibbu í mötuneytinu í Skinney..

Bæbæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 20:42:06 / viktho

Food, fun and run!

Góðan daginn gott fólk!

 Þetta er svo sannarlega búið að vera viðburðarík vika, að minnsta kosti á Vox Retaurant á Nordica Hotel. Miðvikudaginn 21. febrúar hófst Food & Fun út um allan Reykjavík. Hópur af gestakokkum röðuðust niður á flottustu veitingastaði bæjarins og elduðu fyrir lýðin. Gestakokkurinn okkar heitir Kai Kalliio, kemur frá Restaurant Savoy í Helsinki, Finnlandi. Miðvikudagurinn byrjaði vel og allt gekk eins og í sögu. Þannig gekk öll helgin fyrir sig. Á laugardagskvöldinu var okkur fært þær fréttir að Kai Kalliio hafi farið með sigur af hólmi í keppninni sjálfri, að sjálfsögðu vorum við með besta kokkinn. Í lok kvöldsins á Vox skálaði starfsfólkið fyrir góðri helgi og ég fór yfir á ballið og tók barinn. En matseðill Kai Kalliio hljómaði svona:

Lystaukar:
Freyðandi súpa og kaldgrafið finnskt hreindýr með íslenskum bláberjum

Forréttir:
Kóngakrabbi og köld tómatsúpa

Lúða og blómkál

Aðalréttur:
Lamb, sítrónur og hvítlaukur

Eftirréttur:
Súkkulaði og hindber

Hljómar alls ekki illa sá seðill en gestir voru ávallt glaðir og hrósuðu matnum og að sjálfsögðu þjónustunni á Vox Restaurant. En eins og ég sagði þá fór ég á barinn á ballinu sem var haldið á Nordica. Það var brjálað stuð, held samt að ég hafi aldrei afgreidd svona marga gin og tonic, enda oft þekktur sem þjóðardrykkur kokka og þjóna, nema hjá Ara sem drekkur Bacardi Razz í Sprite. En þetta var klárlega skemmtilegasta helgi síðan ég byrjaði í þessu. Og ég vil þakka öllum fyrir skemmtilega vinnuhelgi, en við skulum ekki fara á trúnó hérna í Microsoft Word. Svo eftir allt saman forum ég, Ari, Lovísa og Tinna niður í bæ, Tinna hvarf, þannig að við þrjú vorum á Pravda til svona half 6, þá forum ég og Ari í leigubílaröðina, sem var skrautleg stund. Svo mætti ég í vinnu kl 2 í gær og það var bara ægilega rólegt.

En næstu helgi legg ég leið mina austur á Hornafjörð og hef ég hugsað mér að fara á Blúshátíðina. Vonandi verður það bara til skemmtunar. Fékk nefnilega soldinn samara yfir því að þurfa missa af árshátíð FAS, vonandi skemmtu allir sér vel btw. Heyrði að veislustjórarnir hafi verið langt frá því að vera eins góðir og í fyrra, reyndar heyrði ég það ekki, ég bara veit það, því að það var ég í fyrra, og Lena. Ég hef ekki planað mikið meira fram í tímann sem ég man eftir eins og er. En fleira í fréttum, þann 19. febrúar eignaðist John Rock litla stelpu og þann 21. febrúar eignaðist Ragga einn lítinn bróður í viðbót, og ég eignaðist nýja sokka. En ég óska báðum fjölskyldum kærlega til hamingju. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum að hvorugt barnið hafi verið skýrt Viktor. Það er hægt að sjá myndir af Ceili Björk Poppy Rock á myspacinu hans John.

En ég ætla að fara kalla þetta gott í bili! Ég þakka kærlega fyrir mig í kvöld!

Viktor R


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 15:47:28 / viktho

Smá ogguponsu breyting!

HÆ! Ég var að breyta öllu í "Hver er Viktor" dálknum. Setti inn svona spurningar og svör dæmi, ég stal því að síðunni hennar Lovísu, sem er ekki lítð skotin í mér þessa dagana. En tjekk it át.

 Verið sæl að sinni gott fólk.


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 23:11:08 / viktho

Væruði til í að commenta svona einu sinni!

Nei góðann daginn gott fólk! Þýðing dagsins: I’m so thin because I was absolutely on the pear last night! Ég er svo þunnur því að ég var algjörlega á perunni í gærkvöldi! Kallaði e-r á blogg, ég get samt ekki séð það að einhver vilji fá mig til að blogga aftur, því að enginn, gjörsamlega enginn, enginn tengist null, og einnig autt.. pointið er að það kom ekki neitt helvítis comment á síðustu færslu. Hvað er málið með það? Hvað er comment í ykkar augum? Bananar? Hélt ekki, hættið þá þessu bananarugli.. Anyway, ég fékk soldið skemmtilega pælingu í minn stóra haus í gær. Hér kemur dæmið: Ef þú ræður húshjálp fyrir íbúðina þína, og þið endið á því að verða “friends with benefits”, eða ríðufélagar.. Og eina leiðin til að fá hana til að koma heim til þín er að hafa hana í vinnu.. hvort ertu þá að borga henni fyrir að sofa hjá þér eða fyrir að skrúbba klósettið? Eða bæði? Ég meina, hjá venjulegum karlmanni væri það hugsanlega það fyrrnefnda en hvað veit maður.. Þetta er bara pæling.. Endilega pælið frekar í þessu, sérstaklega starfsfólk ISS..

Helgin fór ágætlega fram, bara vinna aðallega. Kíkti í smá staffadjamm til Jóa Kalla, hann er samkynhneigður, og skammast sín ekki fyrir það. Þetta var allt voða gaman. Slatti að gera á Vox um helgina bara, eða alveg nóg..

Heyrðu, nóg að gerast þessa dagana, tjahh.. eða miðað við aðra daga allavega. Nú standa yfir stórframkvæmdir á Vox Restaurant, það er verið að taka allt eldhúsið og breyta því og lakka salinn og svoleiðis dóterí. Þannig að á sunnudagskvöldið vorum ég og Alan (Þið vitið, gaurinn í X-Factor) kolsveittir að halda á borðum um allt hótel.. ég þurfti að hjálpa Alan soldið mikið því að ég er mikið sterkari en hann líkamlega, er það ekki líklegt? Blökkumenn eru bara einfaldlega sterkari en við hvítu mennirnir og það er ekkert við því að gera. John Rock var líka að bera stóla á fullu eins og Írskur verkamaður, eins og með blökkumenn eru Írar fæddir með betri blótsorðaforða en annað fólk.. Orð eins og whimp, mushroom, dickhead.. ég meina, hvað er móðgandi við það að vera sveppur? En allavega þá tók þetta allt sinn enda, sem betur fer. Munið svo að kjósa Alan í X-factor !

Framundan er hin eina sanna Food & Fun keppni, sem verður gjörsamlega geðveik, þeir sem hafa upplifað þetta áður vilja kalla þetta Food & Fucking Run, af því að það er víst soldið að gera. En já, Vox er einn af Food & Fun veitingastöðunum í ár eins og þau síðustu. Við fáum gestakokk frá einum af betri stöðum í Finnlandi. Þetta verður bara stuð! Síðustu daga hef ég alveg verið á kafi í vínbókum John’s fyrir nemakeppnina.

NÆSTA HELGI úbbs, cabs lockið var á, er allsvaðaleg sumarbústaðarferð uppá Snæfalsnes, það er einmitt vaktin okkar sem er að fara.. Ég og Ari ætlum að vera leiðinlega fullir þar, allavega ég.. Það verður farið uppá jökul að renna sér á svona slöngu og ég geri fastlega ráð fyrir að ég láti lífið þarna uppi, en það kemur auðvitað bara í ljós. Báðir vaktstjórarnir úr eldhúsinu á Vox koma og einn úr veislueldhúsinu, get ímyndað mér það að það verði nokkuð góður matur í boði þarna... Já, ef það verður ekki búið að marínera þá í áfengi.. Svo beilaði Valdimar á okkur, það er verið að fara opna einhvern hommastað niður í bæ.. Ég meina, ef það væri verið að fara opna einhvern straight stað niður í bæ, þá væri ég mættur. Svo beilaði hann líka á okkur til að fara á árshátíðina með lobbystarfsfólkinu, móðgandi? Frétti það já. En það er allt í lagi, við elskum Valda eins og hann er.

En Hornafjörður, hvað er að frétta af honum? Ég sakna Hornafjarðar eins mikið og ég sakna Staupasteins á skjá einum, og trúið mér.. það er ekkert smá. Ég var að spá í að koma á árshátíðina hjá FAS, en það er bara því miður vinnuhelgin mín, þessa helgi er einmitt Food & Fun, má ekki missa af því, þyrfti að gera eitthvað utan siðferðismarka til að fá frí þá. Ég bið allavega að heilsa öllum sem skipta máli á Hornafirði. Munið líka að hafa samband ef þið komið í bæinn.. Ég er alveg ágætis gaur svona í hófi.. og nokkrum sinnum á ári með mér hlítur að vera í hófi fjandinn hafi það nú! Lokapælingin í kvöld er: Orðið sumarbústaður? Er þetta gott og gilt orð fyrir hús í sveitinni sem er til leigu? Ég meina, ef sumarbústaður er leigður út allt árið, er þetta þá ekki alsársbústaður? DA! Ég bið að heilsa í bili, ég elska ykkur flest! Allavega þá sem skipta máli. Og já ég opnaði my space síðu (www.myspace.com/viktorragnar)

Kv. Viktor Ragnar


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 01:19:28 / viktho

Góðan daginn gott fólk!

No, Hello and thank you for the last time!

Þýðing: Nei góðann daginn og takk fyrir síðast!


Bara svona smá pæling.. Allavega Viktor hér eiturhress, held að Heimir sé óformlega hættur hjá Gleðitímar Group. Lítið nýtt að frétta af mér síðan síðast en þó hef ég gert ýmislegt skemmtilegt. Ég hugsa að ég byrji á 2. í jólum sem fór með eindæmum (er það ekki orð?) vel fram. Við byrjuðum nokkrir strákar heima hjá Emil að sturta í okkur áfengi, reyndar var einn gaur þarna sem heitir Birna og ég er búinn að komast að því að hún er ekki gaur. En allavega, við byrjuðum í penthousinu hans Emils og ég mætti með kokteilhristarann á staðinn og sló rækilega í gegn með Whiskey sour og Apfel strutel martini sem er bara æðislegt sko.. Svo fór að hitna rækilega í kolunum og við skelltum okkur heim til Palla, verð samt að viðurkenna að það var mikið skemmtilegra heima hjá Emil þó það hafi verið fínt hjá Palla. Svo þegar kolin voru tilbúin á grillinu skelltum við okkur á ball, sem var líka svona svakalega gaman. Maður dansaði af sér skóna og lá við að maður borðaði handlegginn af sér af gleði. Svo þegar kolin voru farin að kólna dreif maður sig heim eftir að hafa verið fyrir utan Sindrabæ í soldin tíma. Ég er búinn að komast að því að það er örugglega sniðugast að halda ball fyrir utan Sindrabæ, ég meina, það er alltaf mest af fólki þar! Svo vaknaði maður grútþunnur daginn eftir og fór á Hafnarbúðina, þetta var í fyrsta skiptið sem ég hafði ekki matarlyst á Hafnarbúðinni og ég skammast mín soldið fyrir það… Sorry Keli… Svo eftir stutta dvöl á Hornafirði var vinnan að kalla þannig að 28. desember keyrði maður beinustu leið í bæinn á mettíma.


Áramótin komu skemmtilega á óvart hjá mér. Ég var að vinna allt kvöldið, sem var eiginlega bara geðveikt gaman. Um miðnætti fór allt staffið út og horfði á flugeldasýninguna sem var fyrir utan, skáluðum kampavíni og nutum þess að vera í vinnunni. Eftir vinnu tók ég þá stóru ákvörðun í lífi mínu að fara bara heim í staðinn fyrir að fara niður í bæ því ég var að vinna daginn eftir og ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun, var hugsanlega sá ferskasti í vinnunni þann daginn.


Næst var komið að árshátíð Loftleiðahótela. Maður lét ekki bjóða sér neitt rugl og þess vegna vorum við 5 saman sem leigðum þyrlu og fórum í sideseen yfir Reykjavík og lentum svo hjá Loftleiðum þannig að við gætum drifið okkur beint í fordrykkin. Nordica var með sér herbergi til að byrja með og svo sameinaðist þetta allt í einn fordrykk. Örn Árnason var veislustjóri og ég get lítið annað sagt að þessi gæji er algjör snilld, mjög fyndin og kann alveg að fara yfir strikið. Ég sat á borði með alls ekki slæmu fólki, reyndar var stór hlutinn kokkar en það er allt í lagi. Maturinn var eiginlega ekki nógu góður, hann var borðanlegur en ekki framúrskarandi. Skemmtilegast var nú þegar Mási tók lagið með Erni Árnasyni sem var gullfallegt. Svo tók við stórdansleikur með hinum víðsfræga plötusnúði Geir Flóvent, missti reyndar soldið af því öllu. Það má segja að þessir milljón yfirmenn mínir hafi sett upp allt annað andlit þarna á Loftleiðum heldur en í vinnunni, sem er bara snilld. Það má líka til gamans geta að yfirþjóninn fór á Kaffi Kósí eftirá og dansaði uppá borðum með öllu glaða fólkinu…. Hans kynhneigð verður athuguð frekar á þessu ári. En snilldar árshátíð sem endaði bara mjög vel, fékk ágætis herbergi þarna á Loftleiðum þótt að hurðin hafi verið leiðinleg hjá mér þar sem að hún var opin þegar ég sofnaði og nokkrir ólátabelgir komu og nauðguðu mér .


En nú í e-ð allt annað, framundan hjá mér er bara skólinn og strangar æfingar hjá John George Paul Rock sem er þjálfarinn minn fyrir nemakeppnina. Sem verður bara rosalega gaman vonandi og fræðandi. Auðvitað sættum við John okkur ekki við neitt annað en 1. sætið enda stórhættulegir menn þarna á ferð. John þekkir líka IRA þannig að það er eins gott að ég verði dæmdur í 1. sætið. En annars er þetta orðin fokkings góð færsla og ég fer að kalla þetta gott!

Þangað til næst! Bless bless og takk fyrir mig!

Viktor Ragnar Þorvaldsson


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 03:44:12 / viktho

2. í jólum!!!!

Jæja, dömur og herrar í ’88 árgangi? Núna er 8. desember, sem þýðir að það er 18 dagar í 2. í jólum, sem þýðir að það þarf að halda árgangapartí! Eitthvað fokking rugl var með að láta okkur fá Pakkhúsið. En það er búið að láta krakkafjandana í ’89 árganginum fá það. Er golfskálinn í boði, húsið þitt? Eitthvað svo að við getum troðið okkur saman undir sama þak og fengið okkur hressilega í aðra tánna! Áður en fólk fer að hugsa eða segja “Viktor, farðu í rassgat og haltu þetta sjálfur”, því miður er húsið mitt ekki laust. Ég er nefnilega hér í bæ óttans og get voðalega lítið gert. Nennir ekki eitthver að gera eitthvað fyrir hópinn.

 

 



En nóg um það. Það er lítið að frétta hjá mér, bara það vanalega... vinna og sofa.. Það er komið á hreint að ég fer í MK eftir áramót, sem er bara stórgott ásamt því að ég er búinn með helminginn af 1. bekk. Ekkert krassandi í rauninni búið að gerast síðustu vikur þannig séð. Ég sá til þess að ég fengi frí um jólin, en er þá að vinna um áramótin, sem verður örugglega bara rosa stuð, ég býst ekki við öðru og ég frétti að það væri bara stuð að vinna um áramótin. Svo á næstunni er jólahlabbari fyrir staffið á Nordica og Loftleiðum, e-r sagði að þetta væri svona fjölskyldudæmi, já, ég gef skít í það, við Ari, sem er líka utan að landi, hann er frá Keflavík, ætlum svoleiðis að maka okkur í áfengi... tjaahh kannski 1-2 bjóra allavega. Vonandi verður það bara voða gaman. Svo er bara hótelið troðið af fólki í þessum mánuði, fullt í öll jólahlaðborðin og fullt allar helgar á Vox, sem er ekkert nema gaman. Ég held ég geti aldrei sofið aftur, því að í kvöld þegar við vorum búin að vinna settumst við niður og fengum okkur vatnsglas og fórum að tala um drauga og draugagang á hótelinu, og ég verð að segja að þetta var eiginlega svolítið creepy, og þetta var allt sannleikur og ég skeit í mig, það var allt í lagi ég fór í sturtu eftir á. EN, ég skora á ’88 árganginn að finna e-ð hús til að geta komið saman á 2. í jólum, annars verð ég sár.

Þangað til næst, kveð ég í billi!

Viktor Ragnar Þorvaldsson...


» 18 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 02:37:34 / viktho

EVE Fanfest 9-11 nóv!

Já, ekki er öll vitleysan eins. Þann 9-11 nóvember söfnuðust nördar allstaðar frá heiminum til að fagna þess að Eve Online...... sé orðin.. að... sé tölvuleikur! Ótakmarkað áfengi kláraðist kl 1:30 á laugardagskvöldi, og voru þessir tölvusnillingar ekki sáttir. Ekki skrítið að þetta hafi klárast, enda var bjórinn bara á 450 mb/s, og skotið á 500 ghz. Ekki skemmti fyrir að þessi salur tók um 400 gb af fólki. En það sem setti skuggalegan svip á þessa hátíð var að barþjónarnir voru málaðir upp eins og karakterar úr Eve Online, það vakti mikla lukku hjá ýmsum. En myndirnar tala sínu máli!

Þetta er ég stuttu eftir förðunina sem tók tæða 2 klst.

Örugglega flottasta förðunin, ég játa mig sigraðan um að vita ekki hvað önnur stelpan heitir en sú til hægri heitir Hafdís.

Vaka og Hafdís

Matthew var ekki ósáttur milli Vöku og Hafdísar, en stuttu seinna fór hann að vaska upp.

Þetta er hann Yang uppvaskari, hann er menntaður læknir og ótrúlega fær nuddari, en hann fær meiri pening á íslandi fyrir að vera uppvaskari en að vera læknir í Kína, stórkostlegur náungi!

En þetta var svaka helgi, algjört dúndur.

Viktor Ragnar Þorvaldsson


» 13 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 22:59:24 / viktho

Ekki er öll vön úti gott fólk!

Jæja, ég tók eftir því að allir Hornfirðingar eru farnir að blogga, og það á fullu. Þar sem að ég er vonandi Hornfirðingur ennþá ætla ég að blogga líka.

Þann 26. ágúst hóf ég störf á Nordica Hotel, og er búinn að láta tröllríða mér í rassgatið þar síðan. Þetta er miklu skemmtilegra en ég bjóst við, bæði starfsfólkið er frábært og áhugavert sumt af því, þá sérstaklega allir pólverjarnir. Vissuð þið að orðið “nostravia” þýðir bæði “guð hjálpi þér” og “skál!”, aðeins í póllandi gott fólk. En starfsfólkið sem ég á að vera spá í eru yfirmenn mínir, einn af þeim er fremsti vínþjónn landsins og hún er á leiðinni í heimsmeistarakeppni vínþjóna á næsta ári. Þetta er allt ægilega merkilegt fólk. Já.. svo er líka stelpan sem lék systur Palla í Englum Alheimsins, þið vitið, stelpan sem fór að grenja við matarborðið þegar hann trylltist, hreint út sagt edduverðlaunaatriði. En mér lýður mjög vel hérna uppí Grafarholti, og þykir mér leiðinlegt að hafa ekki getað heyrt í eins mörgum Hornfirðingum og mig langar. Planið er að koma heim í 2-3 daga á næstunni. Ég hef gert svo mikið síðustu 2 mánuði að ég veit bara ekki hvar ég á að byrja, toppurinn er þó að ég kynntist 2 æðislegum krökkum frá Svíþjóð sem voru í svona hálfgerðri starfskynningu á Nordica í 4 vikur. Hvorugt þeirra var ljóshært. Þetta voru alveg ótrúlega skemmtilegar 4 vikur, það var næstum því drukkið á hverju kvöldi, en þó yfirleitt hóflega, þó nokkur kvöld hafi verið nokkrum sopum of mikið, sem var bara skemmtilegra. Þó að við gerðum aldrei neitt frumlegt eins og að skoða Gullfoss eða Jökulsárlónið þá var alltaf gaman hjá okkur. Já, þau hafa nöfn, Elín og Matthias heita þau, Elín er stelpa, Matthias er strákur þó hann hafi verið soldið mikil kelling. En segir ekki aldagamall málsháttur “allir sænskir strákar eru hommar”. En þau kvöddu okkur áður en þau flugu heim til sín í Volvo flugvélinni sinni sem þau þurftu að setja saman sjálf, ef þið vissuð það ekki þá eru allir Svíar með IKEA-sjúkdóminn, hann hljómar þannig að fólk er orðið háð því að setja saman IKEA vörur því það færir þeim eitthvað tómstundagaman.

Það er svolítið skrýtið þegar ég spái í því, að ég get lítið talað um annað Nordica þegar ég horfi yfir síðustu 2 mánuði. En til mikilla lukku fyrir mig fékk ég heimsókn frá Röggu, og ég er nokkuð viss um að hún var geðveikt ánægð að sjá mig, af því að hvernig getur verið leiðinlegt að horfa á mig? Það var mjög góð helgi sko. Ég ætla að mæla með einu fyrir fólk sem ætlar að flytja í bæinn að passa sig á djamminu hérna, núna skil ég hvernig útlendingum líður, þetta eru allt rándýr djömm hérna, sérstaklega þegar maður kemst í gírinn, þá bara er maður rændur. En nóg um það.

Íbúðarmál hjá mér eru í toppstandi, ég og Andri búnir að koma okkur ágætlega fyrir hérna í Grafarholtinu, þetta hljómar kannski langt í burtu, en þegar maður er á bíl þá er þetta ekki langt. Mamma og pabbi komu um helgina og fóru í IKEA! En ekki hvað? Keyptu stofuborð og skrifstofustól, en á hvaða skrifstofu á sá stóll að fara, ég veit það ekki. En mig langar ekki að hafa þetta of langt, ég vill bara að fólk viti að ég er á lífi og mér líður vel. Það væri ekki leiðinlegt að fá heimsóknir frá góðum Hornfirðingum og mínum félögum sem ég hef ekki heyrt í alltof lengi.

Ritorð dagsins:

Komið saman nema sundruð séu.

 

Viktor Ragnar Þorvaldsson


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8